38 umferðir
38 umferðir er hlaðvarp sem fjallar um draumaliðsleik enska boltans
Fantasy Premier League (FPL)
Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban
Listen on:
Episodes

4 days ago
4 days ago
1 hr 28 min
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð.

Oct 15, 2026
Oct 15, 2026
1 hr 12 min
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð.
Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag

Oct 7, 2026
Oct 7, 2026
1 hr 29 min
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð.
Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.
Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Ingling, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.

Sep 23, 2026
Sep 23, 2026
1 hr 18 min
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu.

Sep 16, 2026
Sep 16, 2026
1 hr 14 min
Uppgjör á 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Er The blue man group Þríeykið í Chelsea ómissandi, Er einhver Wissa í Newcastle liðinu og er nóttin ennþá ung fyrir þau okkar sem erum í sætum sem telja 6 tölustafi.

Sep 9, 2026
Sep 9, 2026
1 hr 23 min
Þeir Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og ótrúlega frammistöðu Hull City.

Sep 2, 2026
Sep 2, 2026
1 hr 24 min
Er hægt að selja Bruno eftir svona frammistöðu? Barcola, er það eitthvað? Og Verða Chelsea meistarar eftir að Martinez er kominn á milli stangana?
Albert og Sindri leituðu meðal annars svara við þessum spurningum ásamt því að fara heilt yfir stöðuna í síðasta degi leikmannagluggans.Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld

Aug 26, 2026
Aug 26, 2026
1 hr 20 min
Albert og Sindri tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í fyrstu umferð náði sér í 102 stig hvorki meira né minna.
Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule léttöl, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Aug 18, 2026
Aug 18, 2026
1 hr 26 min
Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov
Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast þar þangað til fresturinn til að gera breytingar rennur út kl 17:30 á föstudag.Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov

Aug 12, 2026
Aug 12, 2026
1 hr 34 min
Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland.Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullseye og Matarkjallaranum.
Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
