38 umferðir
38 umferðir er hlaðvarp sem fjallar um draumaliðsleik enska boltans
Fantasy Premier League (FPL)
Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban
Listen on:
Episodes

Mar 18, 2026
Mar 18, 2026
49 min
Nú þegar óvissan er alltumlykjandi varðandi hvenær verða tvöfaldar umferðar er mikilvægt að taka einn dag í einu, og gott að hafa bandið á okkar áreiðanlegasta manni, Bruno Fernandes.

Mar 12, 2026
Mar 12, 2026
1 hr 14 min
Deadline fyrir næstu umferð er laugardaginn 14. mars. kl 13:30. Aron Fantabragðabróðir mætti í stúdíóið til að þessa að spá í spilin í fjarveru Alberts.

Mar 2, 2026
Mar 2, 2026
1 hr 9 min
29. umferð hefst þriðjudaginn 3. mars og lokar fyrir breytingar á liðunum kl 18:00. Fórum yfir allt það helsta ásamt því að fara yfir hver væri góður, betri, og bestur sem fyrirliði fyrir umferðina.

Feb 24, 2026
Feb 24, 2026
50 min
Næsta umferð hefst föstudaginn 27. febrúar og er Deadline-ið því klukkan 18:30. Ef þú ert að velta fyrir þér hvern þú átt að hafa sem fyrirliða þá fórum við yfir hvað væri góði pakkinn, betri pakkinn og besti pakkinn í þeim efnum. Pedro vaktin var á sínum stað og svo er spurning hvort það sé ekki að bresta á með Šeško Time!

Feb 19, 2026
Feb 19, 2026
59 min
Löng umferð að baki þar sem allra augu voru á Gabriel og stóra spurningin er: stóð hann undir væntingunum? Við horfðum líka fram á vegin og tókumst á við spurningar eins og er Thiago súrt, eða safaríkt epli og hver fær fyrirliðabandið frá Gabriel.

Feb 8, 2026
Feb 8, 2026
1 hr 17 min
Fyrsta tvöfalda leikvika tímabilsins er framundan og stóra spurning er er þá ekki tími til kominn að setja fyrirliðabandið á Gabriel og jafnvel virkja triple captain í leiðinni?

Feb 4, 2026
Feb 4, 2026
1 hr 6 min
Í þessum þætti bjóðum við meðal annars upp á áhugavert "take" á næstu tvöföldu umferð og þá höldum við uppá vaxtaákvörðunardag seðlabankans og skoðum leitum svara við því hvor stofnunin, Seðlabankinn eða Fjármálaráðuneytið, er að standa sig betur í fantasy.

Jan 29, 2026
Jan 29, 2026
1 hr 9 min
23. umferðin krufin, misgóður árangur hjá Sindra og Alberti og stór spurning tekin fyrir: er Bruno Fernandes rétti fyrirliðinn fyrir næstu umferð? Við svörum spurningum hlustenda, skoðum prógrammið framundan og förum yfir stjörnulið vikunnar, sem að þessu sinni er lið Bjarka Más hornamanns íslenska handboltalandsliðsins.

Jan 20, 2026
Jan 20, 2026
1 hr 21 min
Fórum yfir 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og tókum fasta liði eins og venjulega. Stjörnulið vikunnar kom hins vegar úr óvæntri átt, en fyrir valinu varð enginn annar en Viktor Gísli, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, sem er í toppformi. Bæði á handboltavellinum og í Fantasy. Að lokum hitnaði heldur betur í kolunum þegar Albert og Sindri tókust á um hvort skynsamlegt væri að selja Phil Foden fyrir Bruno Fernandes.

Jan 13, 2026
Jan 13, 2026
1 hr 17 min
Sindri er mættur aftur við hljóðnemann eftir fjarveru yfir jólahátíðina. Í þættinum fara þeir Albert yfir fasta liði eins og venjulega, auk þess sem þeir velta fyrir sér hvernig best sé að nýta endurnýjuðu „chipsana“ í komandi umferðum.
